Isafjordur Public Library, Art collection, Photo collection, Archives, Culture House Eyrartuni

English
 
 
 
 
 
 
 
Gamlasjúkrahúsið
Pósthólf 138 • 400 Ísafjörður
kt. 540596-2639
Sími: 450 8220 • Fax: 450 8229
bokasafn@isafjordur.is
myndasafn@isafjordur.is
skjalasafn@isafjordur.is
listasafn@isafjordur.is

23. janúar 2012 | 06:49:2
Bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar
 
Smelltu á myndina til að skoða stærri mynd
Föstudaginn 20. janúar var bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar útnefndur í sal Listasafnsins á Gamla sjúkrahúsinu. Margrét Gunnarsdóttir tónlistarmaður og skólastjóri Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar hlaut útnefningu að þessu sinni.

Margrét Gunnarsdóttir fæddist á Ísafirði 16. mars árið 1954, dóttir hjónanna Gunnars Jónssonar og Jónínu Einarsdóttur. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Ísafirði árið 1974 en fluttist þá til Reykjavíkur og nam klassískan píanóleik. Árið 1977 fékk hún styrk til náms við Ohioháskóla í Bandaríkjunum, en haustið 1978 flutti hún til Evrópu og lærði við Sweelinck Conservatorium í Amsterdam í Hollandi. Hún lauk því námi árið 1984 ásamt kennsluréttinum í píanóleik. Sama ár flutti hún aftur til Ísafjarðar og hóf kennslu við Tónlistarskóla Ísafjarðar. Árið 1993 stofnaði hún Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar og hefur verið skólastjóri hans frá upphafi.

5. janúar 2012 | 11:53:55
Þekkir þú fólkið?
 
Smelltu á myndina til að skoða stærri mynd
Nú er unnið að því að setja myndir af óþekktu fólki úr safni Björns Pálssonar á vef Ljósmyndasafnsins. Við hvetjum fólk til að skoða vefinn og senda okkur ábendingar þekki það fólkið á myndunum. Slóðin á vefinn er myndasafn.isafjordur.is.

28. desember 2011 | 06:45
Þarfasti þjóninn - Sýning á gömlum ljósmyndum og ýmsum munum tengdum hestum í sal Gamlasjúkrahússins
 
Smelltu á myndina til að skoða stærri mynd
Íslenski hesturinn er eitt helsta stolt Íslendinga. Þetta einstaka hestakyn hefur fylgt þjóðinni frá upphafi og deilt með henni kjörum í blíðu og stríðu. Öldum saman var hesturinn þarfasti þjónninn, samgöngutæki og vinnudýr. Ólíkt brúkunarhrossum erlendis var hann ekki notaður til dráttar fyrr en undir lok 19. aldar, heldur eingöngu til burðar og reiðar. Notkunin var því fyrst og fremst að sumarlagi til aðdrátta og heyflutninga og við smalamennskur að hausti auk mannflutninga.

Hesturinn var þó ekki bara vinnudýr heldur líka félagi og vinur sem oft var ort lof í ljóði, sagðar af frægðarsögur, og söngvar í taktslætti hófaglammsins. Góður hestur var líka stöðutákn, mannvirðing bónda var hesturinn, bær og bústofn. Gæðingar voru notaðir til skemmtunar, útreiða eða til kirkjuferðar þar sem menn sýndu sig og sáu aðra. Margar sögur hafa verið sagðar af ferðum fólks þar sem hesturinn bjargaði lífi húsbænda sinna vegna þess hversu fótviss hann er og því að hann rataði heim þegar knapinn hafði tapað áttum.

Með tilkomu bílsins árið 1904 breyttist hlutverk hestsins smám saman en hann var notaður í landbúnaði fram á miðja 20. öld. Þegar vélar leystu hestinn af hólmi leit um skeið út fyrir að hestamennskan dæi út með nýjum þjóðfélagsháttum. En raunin varð önnur. Skipulögð hrossarækt efldist í kjölfarð og meiri áhersla var lögð á ganghæfileika og byggingu hesta en áður. Hestamannafélög spruttu upp og farið var að halda hestamannamót. Í dag skapar hesturinn mörgum atvinnu og tekjur, m.a. þeim sem flytja út hesta.

20. desember 2011 | 07:00
Jólasýning 2011
 
Smelltu á myndina til að skoða stærri mynd
Jólasýningin á Gamla sjúkrahúsinu nefnist jólagjafir og þar má sjá leikföng, auglýsingar og fleira frá ýmsum tímum. Auk þess má fræðast um jól og jólahald fyrri tíma á flatskjá.
Sýningin er á 2. hæð hússins og er opin á opnunartíma þess, virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 13-16.

» eldra «
© Bókasafnið - Netheimar - Snerpa